fimmtudagur, 17. október 2013

Spennandi tímar framundan ...


Mín er búin að vera voða upptekin þessa dagana,
Ástæðan fyrir því er ný gjafavöru lína sem ég er að hanna.

Nafnið á henni verður Rustic winter line og samanstendur hún af,
fjórum mismunandi ilmum fyrir heimilið.
sem koma í formi ilmkerta, ilmkubba til að brenna í ilmolíubrennara og heimilisilms.
Eruði ekki spennt?

Einnig verða fallegir rustic snagar
Krítartöflur
skartgripahengi
jafnvel púðar og skilti ef tími gefst til.

Núna verður sko nóg að gera í föndrinu.

Einnig mun ég selja ýmisskonar bakka og fleira fallegt dót sem ég finn ;)

Ég er svakalega spennt, en þetta tekur sinn tíma, þannig vonandi fer allt að rúlla í næstkomandi mánuði.



Engin ummæli: