Loksins loksins ......
mín fjárfesti bara í safapressu um daginn.
Mikið er ég ánægð, núna verður bara nýkreistur safi á hverjum degi.
Lumið þið á góðum uppskriftum af söfum?
Endilega látið mig vita, en á meðan ætla ég að prófa mig áfram.
Einfaldur detox safi
1 lítið epli eða pera
2 bitar sellerí
hálf gúrka
handfylli af steinselju
2 bollar spínat
hálf sítróna
lítill biti af engifer
2 ummæli:
Mér finnst myntu mangó safi ógeðslega góður og ég er orðin húkkt á honum!
Frosið mangó
Spínat
Mynta
Engifer
Appelsínusafi
Á ekki pressu en nota bara blender, eflaust betra samt að nota safapressu :)
namm verð að prófa hann, hljómar ekkert smá vel.
Skrifa ummæli