sunnudagur, 20. apríl 2014

Vinnustofukósý....




Gleðilega páska ...

í dag kíkti ég við á vinnustofunni, tyllti mér niður með nokkur isabellu blöð, 
og kveikti á ilmkerti sem eg keypti í pier um daginn..
ótrúlega góð lykt af því :)

mamma kom með ótrúlega mikið magn af blöðum til að skoða..
alveg hættulegt, og truflandi hehe
á maður ekki að fara á vinnustofuna til að vinna?

En auðvitað var unnið svolítið í að klára náttborðið awww hlakka svo til aðs sýna ykkur á morgun..

 hérna sést aðeins glitta í það :)

Þessi fallega lukt fékk smá myndatöku, hún bíður eftir nýjum eiganda..

 Isabellu blöðin eru svo falleg, mikið af hugmyndum og fallegum myndum.
Ef þú hefur ekki kíkt í eitt, þá mæli ég með að þú drífir í því :)

Þetta fallega málverk af mæðgum fær að fylgjast með okkur á vinnustofunni...


Njótið páskanna kæru vinir...

kær kveðja 
Álfadísin







Engin ummæli: